Byrjendalæsi er kennsluaðferð ætluð nemendum á yngsta stigi. Kennsluaðferðin hefur verið mótuð og þróuð við Skólaþróunarsvið Háskólanns á Akureyri undir forystu Rósu Eggertsdóttur.
Meginmarkmið Byrjenalæsis er að börn nái góðum árangri í læsi sem allra fyrst á skólagöngu sinni.
Byrjendalæsi er kennsluaðferð þar sem unnið er með fjóra meginþætti læsis; lestur, ritun, tal og hlustun. Nemendur í þriðja og fjörða bekk einblína meira á orðaforða, skilning og ritun ásamt hinum fjórum meginþáttunum. Gengið er út frá því að börn þurfi lesefni sem kveikir áhuga þeirra, ýti undir ímyndunaraflið, hvetji þau til gagnrýninnar hugsunar og gefur þeim færi á að mynda merkingarbærar tengingar við eigið líf.
Vinna með tal, hlustun, lestur og ritun er felld saman í eina heild í byrjendalæsi. Enn fremur eru sértækir þættir móðurmálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, orðaforði, setningabygging, málfræði og skrift tengdir inn í ferlið. Byrjendalæsi gerir ráð fyrir því að hægt sé að kenna börnum sem hafa ólíka færni í lestri hlið við hlið, því er lögð áhersla á hópvinnu um leið og einstaklingsþörfum er mætt.
Grunnstoðir Byrjendalæsis: