Starfið í Nesskóla snýst um að auka víðsýni nemenda þannig að þeir verði sem best búnir undir að taka þátt í síbreytilegu nútímasamfélagi.
- Skólinn kennir nemendum um veröldina sem við búum í þannig að þeir verði hæfari til að taka þátt í starfi samfélagsins og bæta það.
- Skólinn okkar er menntastofnun þar sem allir fá tækifæri til að afla sér þekkingar og öðlast leikni.
- Skólinn er uppeldisstofnun þar sem allir geta þroskast og aukið sjálfstraust og baráttuþrek sitt.
- Í Nesskóla geta allir nemendur átt sér griðarstað þar sem þeir geta unnið verk sín ánægðir og sáttir.
Helstu markmið skólastarfsins eru:
- að nemendum líði vel í skólanum
- að efla jákvætt hugarfar og virðingu nemenda gagnvart námi og skólagöngu
- að auka markvisst ábyrgð nemenda á námi sínu
- að stuðla að jafnrétti þannig að allir séu virtir til jafns í leik og starfi
- að taka tillit til ólíkra þarfa nemenda
- að kenna nemendum almenna kurteisi og umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra
- að hvetja til jákvæðra samskipta heimila og skóla þar sem foreldrar taka virkan þátt í námi og starfi barna sinna
- að stuðla að jákvæðum samskiptum við fyrirtæki og stofnanir í bæjarfélaginu
- að stuðla að hollum lífsvenjum og heilbrigði nemenda
- að auka skilning og ábyrgð nemenda á náttúrunni og umhverfi sínu
- að efla frumkvæði og sköpunargleði nemenda
- að gera námsumhverfi aðlaðandi
- að leggja áherslu á mikilvægi umsjónarkennarans