Skólaráð

Í Nesskóla starfar skólaráð skv. 8. gr. grunnskólalaga nr.91/2008. Þar segir:

„Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.

Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári“.

Ráðherra setur reglurgerð um starfsemi skólaráða í samráði við samtök sveitarfélaga, kennara og foreldra.

Nánar er kveðið á um starfsemi og hlutverk skólaráða í Reglugerð um skólaráð við grunnskóla.

Hér má finna einblöðung frá Umboðsmanni barna um hlutverk skólaráðs.

Handbók um skólaráð
Haustið 2019 var gefin út Handbók um skólaráð – fyrir skólaráð. Í þessari handbók er fjallað um hlutverk skólaráðs og bent á hagnýtar leiðir sem skólaráðið getur haft til hliðsjónar í störfum sínum.

Handbók um skólaráð

Skólaráð Nesskóla árið 2024-2025

  • Karen Ragnarsdóttir - skólastjóri
  • Höskuldur Björgúlfsson - kennari
  • Sigrún Júlía Geirsdóttir - kennari
  • Lilja Halldórsdóttir - starfsmaður í skóla
  • Hlynur Sveinsson - foreldri
  • Karítas Ósk Valgeirsdóttir - foreldri
  • Katrín Gunnhildardóttir - formaður foreldrafélags
  • Baldur Einþór Jónsson - nemandi
  • Kolfinna Hafþórsdóttir - nemandi

Áheyrnarfulltrúi og staðgengill skólastjóra: Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir, aðstoðarskólastjóri