Matseðill

Frá haustinu 2017 hefur verið sameiginlegur matseðill fyrir alla leik- og grunnskóla í Fjarðabyggð. Matseðilinn rúllar á 7 vikna fresti og þeir sem sjá um matinn koma til með að hafa úr nokkrum uppskriftum að velja hvern dag. Við samsetningu matseðlana er farið eftir ráðleggingum frá landlæknisembættinu sem styðjast við samnorrænar næringarráðleggingar. Hér fyrir neðan er hægt að sjá matseðla fyrir hverja viku.

  • Fiskur eða fiskréttir tvisvar í viku. Líka feitur fiskur.
  • Kjöt eða kjötréttir tvisvar í viku.
  • Súpur, skyr, hrísgrjónagrautur eða léttur réttur einu sinni í viku.
  • Grænmeti, salat og ávextir í boði alla daga.
  • Gróft brauð (með háu hlutfalli trefja).
  • Grænmetisréttir, tvisvar sinnum í mánuði í stað kjötrétta.

6. janúar - Fiskibollur með karrýsósu og hrísgrjónum.

7. janúar - Grænmetis-bollur með hrísgrjónum, salati og súrsætri sósu.

8. janúar - Fiskur í raspi með kartöflum og hvítlaukssósu.

9. janúar - Lasanja með kartöflumús og salati.

10. janúar - Mexikönsk kjúklingasúpa með rifnum osti, snakki og brauði.


13. janúar - Hakk og spaghetti.

14. janúar - Plokkfiskur með rúgbrauði og smjöri.

15. janúar - Kjúklingaborgara-veisla

16. janúar - Fiskur í deigi með hrísgrjónum og súrsætri sósu.

17. janúar - Rjómalöguð blómkálssúpa með brauði.


20. janúar - Tortilla með heimalagaðri hakkfyllingu, rifnum osti ásamt fersku grænmeti.

21. janúar - Hakkabuff með kartöflumús og brúnni laukssósu.

22. janúar - Soðinn fiskur með kartöflum, tómatsósu, rúgbrauði og smjöri

23. janúar - Kjúklingur í kormasósu með hrísgrjónum og salati.

24. janúar - Hrísgrjóna-grautur með kanisykri og slátri


27. janúar - Pasta með kjötbollum, grænmeti, rauðri sósu og brauði

28. janúar - Fiskur í kryddhjúp með steiktum kartöflum og kaldri sósu. 

29. janúar - Slátur með kartöflum og jafningi.

30. janúar - Ofnbakaður fiskur með karrýsósu og hrísgrjónum

31. janúar - Jarðarberja-skyr með rjómablandi, bönunum og múslí