Í Nesskóla starfar skólaráð skv. 8. gr. grunnskólalaga nr.91/2008. Þar segir:
„Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.
Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári“.
Nánar er fjallað um hlutverk ráðsins í reglugerð 1157/2008. Þar segir í annarri grein:
Skólaráð
a. fjallar um skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið,
b. fjallar um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um þær eru teknar,
c. tekur þátt í að móta stefnu og sérkenni skóla og tengsl hans við grenndarsamfélagið,
d. fylgist með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda,
e. fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum,
f. fjallar um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, foreldrafélagi, kennarafundi, almennum starfsmannafundi, nemendafélagi, einstaklingum, menntamálaráðuneyti, öðrum aðilum varðandi málefni sem talin eru upp í þessari málsgrein og veitir umsögn sé þess óskað,
g. tekur þátt í öðrum verkefnum á vegum skólanefndar að fengnu samþykki sveitarstjórnar.
Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla“.
Ráðið setur sér vinnuáætlun fyrir skólaárið, ákveður hve oft verður fundað, á hvað verður lögð áhersla o.s.frv. Fundargerðir skólaráðs birtast á vefsíðu skólans.
Handbók um skólaráð
Haustið 2019 var gefin út Handbók um skólaráð – fyrir skólaráð. Í þessari handbók er fjallað um hlutverk skólaráðs og bent á hagnýtar leiðir sem skólaráðið getur haft til hliðsjónar í störfum sínum.
Skólaráð Nesskóla árið 2022-2023
Skólastjórnendur:
Anna Marín Þórarinsdóttir, starfandi skólastjóri
Karen Ragnarsdóttir, skólastjóri í fæðingarorlofi
Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Foreldrar:
Hlynur Sveinsson
Katrín Gunnhildardóttir
Kennara:
Nemendur:
Tinna
Ármann
Aðrir starfsmenn:
Grenndarsamfélag:
Steinunn Aðalsteinsdóttir
Fundargerðir
20.10.2022