Fulltrúi á menntaþingi, Bras, Fjölgreindaleikar, Forvarndardagurinn og fleira

Valgeir að flytja ræðu á Menntaþingi haustið 2024
Valgeir að flytja ræðu á Menntaþingi haustið 2024

Það má svo sannarlega segja að það sé mikið búið að ganga á í lok september byrjum október. Þann 30. september vorum við með fulltrúa á menntaþingi stjórnarráðsins. Var það nemanda í 10. SJG hann Valgeir Elís Hafþórsson sem flutti upphafsræðu menntaþingsins ásamt öðrum nemanda úr öðrum skóla. Hægt er að horfa á ræðuna og lesa upplýsingar um menntaþingið hérna.

Bras kom til okkar og voru með listasmiðjur. Í boði var Leiklistasmiðja með Karitas Harpa Davíðsdóttir, Sirkuslistasmiðja með Húlladúllunni Unni Maríu Máney og Myndlistaheimar með Þórhildi Tinnu og Vikram. Var unglingastiginu skipt upp í smiðjur sem rúlluðu yfir daginn. Gekk dagurinn vel og nemendur ánægðir með daginn. Hægt er að sjá myndir af Brasdeginum hérna. (ATH myndir ekki komnar inn í albúmið)

 

Nesskóli ákvað að taka þátt í Forvarnardeginum 2024. Forvarnardagurinn er haldinn í flestum grunn- og framhaldsskólum landsins og var nú haldinn í 19. sinn.

Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er dagskráin hugsuð fyrir nemendur í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla.

Á Forvarnardeginum ræða nemendur um verndandi þætti gegn áhættuhegðun. Þar er lögð áhersla á samveru með fjölskyldu, þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og að leyfa heilanum að þroskast. Einnig er rætt um vellíðan og hvaða þættir skipta þar máli eins og félagsleg tengsl, svefn, hollt mataræði, hreyfing, vímuefnalaus lífstíll og veita því jákvæða í lífinu athygli.

Að sögn Sunnu, sem stýrði verkefninu í Nesskóla, stóðu krakkarnir í 9. SHÁ sig afar vel. 

Hérna er hægt að fá upplýsingar um forvarnardaginn.

Fjölgreindarleikarnir voru haldnir í fyrsta skipti í Nesskóla núna í vetur. Ástæða þeirra var námskeið sem margir umsjónakennarar fóru á í Uppeldi til ábyrgðar tvö. En eins og allir vita þá vinnur Nesskóli eftir þeirra stefnu. Til þess að allt gengi upp var öllum nemendum skólans skipt upp í 13 hópa frá 1. Til 10. bekk. 10. Bekkur fékk það ábyrgðarhlutverk að vera hópstórar og stýrðu hópunum á rétta staði og héldu utan um hópinn. Gekk það eins og í sögu hjá þeim. Samtals voru 26 stöðvar þ.e. 13 stöðvar á hverjum degi. Á stöðvunum var starfsmaður sem stýrði þrautunum. Hóparnir voru einnig saman í mat. Fóru mörg brosandi börn úr skólunum þennan dag svo það má svo sannarlega segja að þessir tveir dagar hafi gengið vel. Hægt er að sjá myndir frá deginum hérna. (ATH myndir ekki komnar inn í albúmið)