Þegar þessi niðurstaða lá fyrir nú í morgun hófu starfsmenn framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar strax vinnu við að meta aðstæður og hvaða aðgerða væri þörf við viðgerðir á húsinu í samráði við sérfræðinga. Sú vinna hefur gengið vel og munu verktakar hefja vinnu á mánudag við lagfæringar og úrbætur á álmunni. Ekki lítur út fyrir að sú framkvæmd sé stór eða mikil, en þó liggur fyrir að álman verður ekki notuð til kennslu alveg á næstunni.
Starfsmenn Nesskóla og fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar vinna nú að því að skipuleggja starf elsta stigs Nesskóla með tilliti til þeirra aðstæðna sem upp eru komnar. Gert er ráð fyrir því að á mánudag verði skipulagsdagur kennara á unglingastigi þar sem starfið framundan verður skipulagt, nemendur á elsta stigi Nesskóla mæta því ekki í skólann á mánudag. Á þriðjudag er síðan stefnt á að hægt verði að hefja kennslu að nýju að einhverju leyti, en ljóst er að þetta mun hafa einhver áhrif á kennslu á unglingastigi á næstunni.
Foreldrar í Nesskóla eru beðnir um að fylgjast með frekari tilkynningum frá skólanum í Mentor á mánudag varðandi útfærslu skólastarfsins.
Það er ítrekað að ekki er ástæða til að ætla að mygla sé á fleiri stöðum í húsnæði Nesskóla og því mun starf annara stiga skólans ekki verða fyrir áhrifum af þessum völdum.